/ Dagsins annir /Börnin / Myndir / Tásla / Hið góða og fyndna /Tenglar / Hestarnir / Við / Gestabók /

   www.hrossasott.com 

Dagsins annir

Hestarnir

 

Við 

 Hagi 1989


Við hjónakornin komun bæði af suðvestur horninu, munurinn sem er á okkar æsku er að Biggi er alinn upp í Reykjavík en ég úti í sveit, ég er frá Haga í Holta- og landsveit . Biggi var nú samt oft í sveit þegar hann var strák pjakkur, þá var hann á Túnsbergi í Hrunamannahrepp, þar var hann látinn sækja kýrnar og ganga til annara starfa, þar fékk hann líka að komast á hestbak. Ég held að ég hafi nú snemma sýnt það að ég er illa haldin af hrossasótt var ung farin að sitja hest og vilja vera í kringum hrossin, best leið mér á hestbaki með kött í fanginu, hef líka alltaf haft mikið dálæti á köttum. Ég fékk tvö hross í tannfé svo að eins og sagt er "snemma beygist krókurinn" Það voru Svanur minn og hún Litla-brúnka sem svo seinna gaf mér hann Litla-brún minn :-) Ég man eftir mér þegar ég stóð ca 4 ára gömul úti í garði og furðaði mig á afhverju væri verið að taka hann Svan minn, en þá voru karlar að taka hross og þekktu sína hesta ekki betur en þetta, ég varð að hafa mig alla við til að láta þá skilja það að þetta væri sko minn hestur. Biggi hefur alltaf verið hrifinn af hrossum þó hann hafi nú ekki haft mörg tækifæri á að komast á bak, ef hann fékk tækifæri til þess skellti hann sér strax á bak. Ég var ekki gömul þegar ég vildi hafa áhrif á hvaða folöld voru látin lifa enda fékk ég það líka í höfuðið seinna að þá var komið að mér að temja þessi hross ;-) Ég fór á nokkra bæi til að temja þegar ég var 17-20 ára fór bæði norður og var í Þýskalandi og hjá Alberti Jónssyni á Strdarhöfða. Eftir að við Biggi byrjuðum að búa hef ég ekki tekið mikið að aðkomu hrossum til mín, hef verið mest með okkar eigin hross og fyrir jú mömmu.

Við keyptum okkur nýtt hesthús í Gusti haustið ´05. Mjög gott 8 hesta hús. Ég fór að temja aftur fyrir aðra haustið´05 og veturinn ´06 og gekk bara vel hafði mikið meira en nóg að gera, tók mér frí frá miðjum jún og byrja svo aftur um miðjan ágúst´06

Börnin Biggi  Lilja og Gummi  Siggi og Sigga                  

Fleiri myndir

 

Tenglar

 

Við

 

 

Copyright © www.hrossasott.com   E-mail: hrossasott@hrossasott.com