|
Dagsins annir

7.Mars
Gleðilegt nýtt ár.... til hamingju með bóndadaginn (bændur) til lukku
með konudaginn (konur)...
Já já já það er orðið ansi langt
síðan ég bloggaði síðast
L
Er búin að hugsa mikið um það, er ekki sagt að hugurinn beri mann hálfa
leið????
Nú já til hamingju öll afmælisbörn.... í janúar voru það... Magnús
frændi, Fannar okkar ágæti (sem er jú komninn langt á fertugsaldurinn)
Össi sem loks komst í fullorðinna manna tölu, Særós Ásta okkar sem nú er
orðin 11 ára, svo kom febrúar... Bjössi Biggafrændi sem átti afmæli og
degi seinna fæddist honum lítil prinsessa (Aníta), til hamingju Lilja og
Bjössi, Davíð Þór átti líka afmæli.. vá og það er kominn mars... Sjöfn
og Þorlákur deila degi, Daníel Örn og ég deilum einnig degi... held ég
sé ekki að gleyma neinum ef svo er þá sorry þú ;-)
Lífið gengur annars sinn vanagang hjá okkur hér á bæ... Biggi fer á
sjóinn og kemur svo heim nokkuð mörgum dögum seinna, er heima í fáa daga
og fer á sjóinn aftur... rútína hvað? Börnin fara í skólann alla morgna...
svo eru þau ansi dugleg í ýmiskonar sprikli og skoppi, Hafþór í
fimleikum og Særós í sundi, reiðnámskeið og skátarfundir inn á milli...
í dauðatímanum ríða þau svo út af krafti, eru rosalega dugleg og
áhugasöm um að koma í hesthúsið með mér og ríða út á fullu. Þau eru
farin að aðstoða mig með sum tryppin, reka á eftir ef ég bind tryppi
utaná annað hross og svo fylgja mér um göturnar á tryppum sem enn þurfa
fylgd úr hlaði. Já það er ekkert smá frábært að eiga svona duglega
aðstoðarmenn sem eru full áhuga um allt sem snýr að hrossum. Munar um
minna eins og maðurinn sagði ( hver ætli hafi sagt þetta fyrst? Hhmmm?)
Jólin og áramótin gengu friðsamlega fyrir sig hér á bæ, pakkaflóð og
sprengingar.... bara gaman





Í byrjun febrúar var haldið upp á 11 ára afmæli Særósar, 15 kátar
stelpur mættu hér galvaskar og var svakalegt stuð á heimilinu.
Fjölskyldu og vinum var svo boðið í súpu og brauð á laugardagskvöldi...
setið var yfir söngvakeppni Sjónvarpsins og bara stuð á fólki.

Smá litlaþema í gangi




Rut og Særós

Biggi knúsar Rannveigu
Hrossin okkar eru komin í ágætt trimm, enda eru fáir dagar sem detta út.
Við Sprunga mætum í skólann þegar þess þarf og gengur það bara ágætlega.


Í lok desember fórum við austur og sóttum Kipp og Hnykk. Ferðin gekk
mjög, fengum frábært veður og hrossin voru í flottu standi bæði í Saurbæ
og Baugstöðum. Held við höfum aldrei haft eins lítið fyrir því að taka
folald á kerru eins og þegar við tókum Kipp, ég byrjaði á að mýla Kviku
og setti á hana teymingagjörð, gekk svo að Kipp setti á hann múl og batt
hann utaná Kviku, teymdi svo bara Kviku í rólegheitum að kerrunni, engin
átök ekkert streð, Kippur teymdist bara eins og taminn ;-) Bara draumur
í dós að eiga við þenna fola. Hnykkur var rekinn heim með stóðinu á
Baugstöðum og inn í hús, það gekk vel að mýla hann og hann var fljótur
að skilja bandið, var nú samt ekki allveg jafn ljúfur og Kippur en góður
engu að síður.



Kvika og Kippur

Litskrúðugt stóðið okkar

Árás

Slóð

Ísöld

Birta hlær hrossahlátri
Fljólega bættist svo eitt folald við í vist hjá okkur, Giljagaur frá
Hafnafirði. Þessir þrír félagar voru fljótir að spekjast og eru allir
ósköp góðir í umgegni, lærðu allir að vera bundnir, teymast og lyft væri
upp á þeim löppum, enginn þeirra slægur eða neitt stressaður, allir
ljúfir og yfirvegaðir. Ég tók mig svo til og heil-rakaði þá alla. Allt
annað að sjá þá svoleiðis ;-)


Kippur





Hnykkur
Í lok janúar fóru þessir félagar svo austur til Gumma og Sjafnar í
uppeldi, hafa það gott þar. Okkur finnst gott að taka folöldin aðeins
inn, kynnast þeim og kenna þeim undirstöðu atriði fyrir tamningu seinna
meir en ef folöld eru of lengi á húsi verða þau fljótt að dekurdýrum
finnst mér, nema ef þau eru sérstaklega stygg og þarfnast meiri umgengni
en önnur. Hjá Gumma og Sjöfn fá þau góða umgegni, sett út og inn og
mokað hjá þeim daglega en ekkert óþarfa dekur (nema um það sé beðið)
Í byrjun febrúar fórum við upp að Meðalfelli og hjálpuðum til að reka
eitt stóð heim, við tókum eina hryssu með okkur í bæinn í þessari ferð.
Þarna sáum við loks Parkersdóttirina (Kviku) sem við erum nýlega búin að
eignast... hestkaupa hvað? Einnig heilsuðum við upp á Ljósku og Dimmu
okkar,einnig er hann Myrkvi hans Ragga fyrrverandi hennar Kollu þarna (smá
flókin tengsl) hrossin litu vel út og voru sælleg.

Stóðið skokkar heima að bæ

Myrkvi

Kvika Parkersdóttir

Ljóska

Við Sigurþór ræðum málin...

Kisi hefur það gott í hesthúsinu
Einn laugardaginn í febrúar fóru krakkarnir á skauta og skemmtu sér
konunglega, höfum nú ekki oft farið en þau voru fljót að ná valdi á
skautunum og léku listir sínar


Við fengum smá snjó..

við mikinn fögnuð barnanna, en blessaður snjórinn staldraði stutt við.

Útreiðafærið
var reyndar ekki skemmtileg

en
það er alltaf gaman að leika sér í snjónum ;-)




Kristín María og Örvar áttu með okkur dag í hesthúsinu um daginn, þau
komu með þessa líka flottu ábreiðu sem mamma hennar Kristínar prjónaði
handa henni... auðvitað voru sparimerarnar okkar setta í hana og
myndaðar, Jalda og Sprunga


Ég er oft með litla myndavél með mér í töskunni minni, gríp hana þegar
ég man eftir henni og tek út af henni allt of sjaldan.... Fann myndir
síðan í hestaferð í sumar þar erum við að fara yfir Stóru-Laxá í
Hrunamannahrepp. Hafþór ríður Hemru, Særós Gjafari, Sigga er á Sjón,
teymir Grana og Skrá, Biggi er á Grádögg og teymir Sprungu.


Í sömu ferð riðum við niður Þjórsárbakkana, skemmtileg leið, veðrið lék
við okkur og reyndar rykið líka. Biggi ríður Grádögg og teymir Hemru og
Skrá. Hafþór er á Jörð sinni.

Sáum þennan flotta mótorfák einn daginn er við áttum leið um Selfoss í
sumar

Þessi bíll var líka á ferðinni

Í haust fórum við austur að Flúðum og settum spæni í poka og fylltum
stóran fluttningabíla af pokum...


Össi kom með og ætlaði að hjálpa til en fann bjór í bílnum okkar....

Það
var mikið ryk og ekki voru gleraugun til mikils gagns .....


Bygging á nýja hesthúsinu okkar er hafin, komnir sökklar og spennan er
sumsé gífurleg en ég er samt ekkert æf...

26.des´09

8.2´10
Stefnum á að flytja inn í haust....
Uppskeruhátíð sunddeildar Breiðabliks var haldin og þar fékk Særós Ásta
viðurkenningu fyrir bestu mætinguna í sínum hóp einnig viðurkenningu
fyrir að vera duglegur sundiðkandi. Flott stelpan okkar ;-)

Pabbi og Dísa buðu okkur í mat eitt kvöldið, þar á bæ eru tveir fuglar
sem vekja mikla athygli Táslu.


Skrýtla gamla er ekkert að halda í við sig... en hún er síður en svo
hrifin af hundum í heimsókn



Skrýtla er fædd í júlí 1996

Saltsteinninn er alltaf góður
Í sl viku opnaðist sár á afturfæti á hrossi (Gjá) hjá mér sem er sko frá
sögu færandi, við, Kolbeinn og Hafþór vorum í útreiðatúr og Gjá var í
taumi, á leiðinni sá ég að það blæddi úr hægri afturfæti og auðvitað
stoppuðum við og kíktum á sárið, mér fannst þetta eh skrýtið og þegar
heim í hesthús var komið fékk ég dýralækni til að líta á þetta....Það er
eh kúla sem kemur út úr fætinum..... Líklegast er að þetta sé æxli sem
er að vaxa þarna út úr fætinum, það þarf að svæfa hryssuna til að gera á
henni aðgerð og skera þetta í burtu hvað sem þetta er nú þá verður það
sent í ræktun og vonandi fæst eh niðurstaða hvað sé á ferðinni... get
ekki sagt annað en að mér finnst þetta spennandi en auðvitað er þetta
ekki gaman. Hryssan er óhölt og kennir ekkert til í þessu, kippir sér
ekki við þó maður komi við kúluna ...:-/

23. des
Gleðilega hátið kæru vinir, við þökkum ánægjulegar samveru stundir á
líðandi ári og hlökkum til að hitta ykkur kæru vinir hress og kát á nýju
ári
Desember hefur flogið áfram..... nú eru bara að skella á jól og allt að
springa úr spenningi hér á bæ, eins og hjá svo mörgum öðrum ;-)
Ekkert nema bara gaman að fylgjast með börnunum sínum telja niður dagana
til jóla, sjá gleði glampa í augum þeirra þegar undirbúningurinn er á
fullu, jólapakkarnir streyma inn og hver öðrum forvitnilegri..... úff
hvað það er gaman að vera til á þessum tíma.
Hér á þessum bæ hefur allt gengið sinn vanagang, jóla undirbúningurinn
tekin á met hraða, brunað um bæinn þveran og endilagangan í leit að
gjöfum fyrir fjölskyldu og vini. Nú er all orðið klárt, pakkarnir
þvegnir, jólatréð steikt, börnin skreytt, karlinn skín skært, steikin
innpökkuð ;-)
Þrenna sem ég auglýsti hér fyrir neðan er seld, komin til nýs eiganda
sem er 10 ára gömul stelpa. Til lukku með hryssuna.
Fyrsta helgin í desember var ansi þétt hjá okkur... á laugardeginum var
jólaball LHG, jólaskemmtun sunddeildar Breiðabliks, þar mætti fólk ekki
í „venjulegum jólaballsklæðnaði heldur á sundfötum og náttfötum því
skrautlegar útfærslur sem litu dagsins ljós þegar þreytta átti boðsund
af ýmsum toga, svo tók ég bóklega prófið í skólanum í dauða tímanum



 
Svo á sunnudeginum fórum við austur í Kaldárholt og röguðum hrossin í
sundur, tókum Sjón, Grádögg,
Gjafar og Jörð inn í rétt því þau fóru svo á hestaflutningabíl í bæinn,
hin hrossin fóru yfir að Saubæ þar sem þau verða fóðruð í vetur.
Við teymdum elstu hrossin í hendi og létum þau yngri fylgja með, raunin
er sú að þó ungviðið sé forvitið og áræðið þá eru þau samt ekki það
sjálfstæð þegar á hólminn er komið að þegar á að taka stórar ákvarðanir
um hvert skal haldið eða hver skal vera fyrstur á nýjum slóðum að þeim
finnst öruggara að halda sig með sér eldri og reyndari og fylgja þeim,
ekki að ástæðulausu að foringi er í hverjum hóp. Með því að teyma elstu
hrossin fóru ungu tryppin ekki langt frá okkur þótt þau hefðu gott pláss
til að spretta úr spori, léku jú lausum hala um túnin í Saurbæ en það
varði stutt, fóru ekki langt frá þeim eldri og komu fljótt aftur og
fylgdu okkur í rólegheitum í gegnum hlið eins og tamin hross.
Á ca 3km leið sem við förum með hrossin eru 3 ristarhlið sem við þurfum
að fara um, svo það er eins gott að fara varlega þegar þarf að koma
stóðinu í gegnum mjó hlið sem eru til að fara með búfénað í gegn við
hliðina á ristarhliðunum. Þá er gott að hafa eldri hrossin í taumi og
þau yngri raða sér í lest og fylgja eins og vel tamdir hundar ;-)

Þegar í gegnum síðasta hliðið var komið slepptum við öllum hrossunu
lausum nema ég stökká bak Kviku og reið henni síðasta hlutann, röltum í
rólegheitum á eftir hrossunum, þau elstu röltu fremst og svo elti
ungviðið


Hrossin litu öll vel út, feit og sælleg, aðeins hún Komma komin með
hnjúska en það er samt ekki til að hafa miklar áhyggjur af þegar hún er
komin á gjöf. Hrossin sem komu inn voru öll feit og fín.
Hrossin voru svo fljótlega járnuð og ekki létu krakkarnir bíða eftir sér
með það að fara á bak, Hafþór td beið með beislið sitt í hendinni þegar
Jörð hans var járnuð, sá stutti lagði síðan við merina sína og bað um
aðstoð með að ná í hnakkinn sinn, rétt seinna sást á eftir honum út í
myrkrið þar sem hann lallaði nokkrar götur á þeirri rauðu.... Særós
greip strax færi á að leggja á hann Gjafar sinn þegar hún komst í
hesthúsið og auðvitað skellti hún sér í útreiðatúr á þeim grá og var
eins og hver önnur prinsessa um stund ;-)
Krakkarnir fara svo öll á reiðnámskeið strax í byrjun janúar, Særós fer
með Gjafar, Hafþór með Jörð svo er hann Kolbeinn“okkar“ í Knapamerkjum
1&2 og verður með hana Grádögg í verklega hlutanum í vetur, tók bóklega
hlutann í nóvember. Já svo verðum við Sprunga jú áfram í skólanum „okkar“.
Nóg að gera hjá öllum.... Vonandi bara að hross og mannskapur komi vel
menntuð út úr þessu eftir veturinn ;-)
Nú er jólafrí í skólanum mínum, prófin búin og við Sprunga slökum bara á
í bili, okkur gekk bara vel í verklega prófinu, já og jú líka í því
bóklega, er bara nokkuð sátt við mig og undan Sprungu kvarta ég nú ekki
enda þvílík spari meri orðin hjá mér að það hálfa er eiginlega allveg
hellingur ;-)
Biggi kom heim í byrjun desember og er búin að vera með mér í hesthúsinu
svo höfum við tekið nettar tarnir og hrist jólin fram úr ermunum....
Já svo er búið að taka stigaganginn okkar líka þvílíkt í gegn og í
kringum það hafa verið snúningar, kominn nýr ca 6m hár gluggi, allir
veggir, hurðir, handrið ný málað, nýtt teppi bara eins og að koma í nýtt
hús þegar maður kemur heim núna, bara gaman, Stigagangurinn sem við búum
í er allveg einstakur, allar ákvarðanir teknar vandamálalaust, enginn
þrasari, samkomulagið gott, enda sást það vel í þessum framkvæmdum, við
hittumst bara við og við fram á gangi, ákváðum liti fyrir hvern hlut
fyrir sig á staðunum, ekki formlegir fundir með viku fyrirvara og öllu
því tuði sem getur fylgt í sumum stigahúsum, sumsé ekkert vesen og málið
bara dautt.
Nú fer örugglega að styttast í að við tökum folöldin okkar tvö inn, Kipp
og Hnykk en þeir ganga enn úti með mæðrum sínum, feitir og fínir... held
að ef þeir veriði mikið lengur úti þá fara Biggi og mamma gangandi
austur með hjólbörur og keyra þá þannig í bæinn... eru allveg ómöguleg
bæði tvö yfir því að „grey“ strákarnir séu ennþá úti...ææææ
En það verður gaman að fá þessa kauða aðeins inn, binda þá og leiðitemja.
Mér líst amk mjög vel á hann Kipp, hægt að ganga að honum úti og taka
upp á honum fætur, án þess að hafa nokkuð verið að eltast við að spekja
hann eða eiga sérstaklega við hann, hann ákvað það bara upp á sitt
einsdæmi að vera svona líka spakur og öruggur með sig þegar við komum


Dimma okkar er nú farin að Meðalfelli og verður þar á útigangi fram
eftir vetri. Þar eigum við líka hana Ljósku okkar en hana ætlum við að
taka inn þegar fer að líða að vori.
Nú til að halda áfram þessum hrossakaupum sem við höfum jú verið svo
dugleg við sl mánuði þá erum við að eignast eina nýja hryssu, 5.v
rauðblesótta Parkersdóttir... meira um hana síðar.
22. nóv
Tók mig til um helgina og bætti við nokkrum nýjum tenglum inn á
tenglasíðuna
mína... endilega kíkið þar við og ef þið „dettið“ inn á eh sniðugar
síður þá megi þið gjarnan senda mér slóðina að þeim á tölvupósti svo ég
geti nú bætt enn meira við ;-) Ég bætti einnig við smá texta um nokkur
hross hjá okkur. Bæti svo fljótlega við nýjum hrossum á síðuna.
Nú var síðasta skólahelgin mín fyrir jól, búið að vera mjög gaman og
gagnlegt, þó nokkur heimavinna og eins gott að æfa sig vel fyrir hvern
tíma... Við enduðum önnina í dag og tókum verklegt próf á hesti inn í
reiðhöll. Var bara gaman (þegar allt var yfirstaðið) Nú er Sprunga mín
komin í smá „pásu“ í amk viku svo þjálfa ég hana bara létt yfir
hátíðarnar svo tekur næsta önn við með verklegri kennslu strax fyrstu
helgina í jan.
Annars er ég með alþæga og góða reiðhryssu til sölu, allir geta riðið
henni. Hún er hreingeng og ekta fjölskyldu útreiðahross eða jafnvel
keppnis hross fyrir barn. Særós og Hafþór fara á henni hvert sem er án
allra vandamála. Hún er á húsi
hjá mér og sjálfsagt mál að koma og prufa dömuna ef þið eruð á höttunum
eftir góðu reiðhrossi.... sem væri hægt að lauma undir stóðhest ef svo
bæri við ;-) Hryssan ber nafnið Þrenna og er frá Hólmahjáleigu. Hún er
undan Þrist frá Feti og Kröflu frá Hólmahjáleigu (bygg 7.64, hæf 8.10
ae7.92)





17.
nóv

Birta
ágúst´09
Alltaf
ætla ég að taka mig á í þessum blessuðu skrifum .... svo veit ég ekki
fyrr en aftur eru liðinir tveir mánuðir frá síðustu skrifum mínum....
ekki er ástæðan sú að ekkert sé að gerast á þessum bæ, nei sko aldeilis
ekki!!! Dagsins annir
standa engan vegin undir nafni en nú ætla ég sumsé að reyna að skrifa
hér inn á amk 10 daga fresti.... endilega minnið mig á það ef ég klikka!!!!!

Í
byrjun sept náði ég í Kommu frá honum Fláka frá Blesastöðum, hún
sónaðist fylfull svo nú er bara að bíða og sjá hvað hún kemur með handa
okkur nk sumar ;-)

Helgina 11.-13. Sept brugðum við Kolbrún vinkona okkur norður í Mánaskál
með börn og hund. Fylltum jeppann okkar af farangri sem okkur
fylgdi,hengdum eina kerru aftaní sem var full af parketi sem þurfti að
komast í Mánaskál. Loksins fórum við vinkonurnar saman norður... löngu
kominn tími til að fara tvær saman.... með viðhengin okkar ;-) Við
höfðum það gott í sveitinni, slöppuðum af... fúavörðum sólpallinn (fyrst
maður var nú komin var ekki hægt að sleppa því að gera eh smá gagn ;-))
fylgdumst með fjársmölun, en árleg smölun var í Laxárdalnum og
nærsveitum og svo Skrapatungurétt á sunnudeginum. Særós og Hafþór voru
mjög dugleg að dunda með Þórdísi Kötlu og kepptust um að fá að passa
hana og skipta á henni ef þau mögulega gátu. Fórum svo auðvitað í réttir
þar sem Særós og Hafþór nutu sín í botn. Veðrið var frábært og fólk lék
við hvern sinn fingur í réttunum ;-)




Viku
af september tók ég Sprungu inn og byrjaði að liðka hana aðeins, ég
skellti mér nefnilega í skóla og er Sprunga skólahrossið mitt ;-) ég
varð jú að bæta eh við hjá mér enda get ég sjaldan setið auðum höndum.
Er í Reiðmanninum, svo nú er eins gott fyrir mig að standa mig
almennilega ;-)

Ég var
með hana Ljósku okkar Hágangsdóttir inni í 6 vikur frá byrjun sept fram
í október. Hún kom mjög vel til í tamningu og tók öllu vel, rösk og
örugg áfram, allur gangur laus og hreinn, ekkert hik eða nein hræðsla
við neitt hjá henni. Hlakka til að halda áfram með hana seinna. Slepptum
henni svo bara út þar sem hún er jú bara 3.ja vetra tryppalingur ;-)
Um
miðjan sept leigði Biggi ljósmyndastudio heim í stofu heila helgi og tók
hann myndir af börnunum eins og mest hann mátti ;-)


24.sept brugðum við mamma og krakkarnir okkur austur í Áfangagilsrétt,
Helga G. Var líka á svæðinu með sín viðhengi og múttu. Margt fólk var á
svæðinu,allir hressir og kátir. Mikil eftirvæntig hjá mörgum að sjá
hvernig féð kom af fjalli og hversu góðar heimtur væru. Mamma kom sér í
vinnu sem hliðvörður, svo er nú líka gott að fletta upp í kerlu þegar eh
er óöruggur með fjármörkin... kerla kann þetta allt ;-) Særós og Hafþór
drógu lömb og kindur eins og enginn væri morgun dagurinn ;-) Svo prufuðu
þau bændaglímu og fannst það ekki leiðinlegt ;-)





Fyrstu
helgina í okt fórum við, Biggi ég, Hafþór og mamma austur að Kaldárholti
og hjálpuðum Gunnu að smala kindum og sorterta líf og sláturlömb.
Smölunin gekk vel og veðrið var geggjað ;-) Litli prinsinn naut þess að
vera einn með foreldrum sínum.



Særós
var í skátaútilegu þessa helgi á Úlfljótsvatni með skátahópnum sínum og
skemmti sér konugnlega

Dimma
Ég hef
nú skrifað um það hér inni að hestakaup séu bara stórskemmtileg íþrótt
ef út í það er farið.... alltaf smá spenna og maður er jú alltaf að
græða ;-) eða hvað??? Hehe ég fór amk í hestakaup í haust með hann Orra
sem ég fékk í vor, hef ekki tíma fyrir hann og raun ekki mikið við hann
að gera því við eigum svo mörg önnur ung hross sem okkur langar að sjá
hvað býr í.... við fengum 14.vetra tamda brúna hryssu undan Safír gamla
Viðvík. Dimma heitir daman. Skemmtileg meri, viljug og flugrúm, við erum
með hana á húsi núna aðeins til að kynnast henni svo fer hún bara út
aftur og kemur inn með vorinu fyrir hestaferðirnar ;-)... alltaf að
græða ;-)

Kaldárholtskettlingur
Skólinn hjá mér er að mestu í fjarkennslu, bóklegi hlutinn og öll
verkefnaskil í gegnum tölvu. Svo eru verklegar helgar þar sem við mætum
með hrossin okkar og fáum tilsögn og er svo sett fyrir heima fyrir næsta
tíma.... svo er bara að æfa sig og vera dugleg því nú styttist verulega
í verklegt próf. Sprunga stendur sig vel í því sem við erum að gera...
mér finnst þetta skemmtilegt og gagnlegt og gaman að fá tíma fyrir
sjálfan sig og verða að búa þann tíma til í öllu skipulaginu ;-)
Loksins fer hesthúsbyggingin okkar að fara af stað, erum komin með öll
leyfi og teikningar eru tilbúnar.... örugglega eh sem þarf að breyta en
það kemur þá bara í ljós seinna. Ætlunin er að húsið verið tilbúið til
fyrir 1.apríl 2o1o en þá eigum við eftir að setja upp innréttingar og
milliveggi... er satt að segja orðin spennt fyrir þessu og finnst þetta
loks vera raunverulegt ;-) verð að drífa mig uppeftir og taka mynd af „holunni“
og svo setja inn myndir reglulega af byggingarframkvæmdum.

Í
október var hann Bólstri hans Hafþórs felldur, var jú með spatt í báðum
afturfótum, við vorum búin að gefa honum mjög mikinn tíma til að gróa en
hann varð alltaf haltur aftur þó hann væri ekkert brúkaður,
bara undir sjálfum sér. Síðasta árið var hann í Hólmahjáleigu og
sáu þau um að fella hann fyrir okkur, líka ágætt fyrir Hafþór að venjast
því að klárinn væri ekki í okkar stóði en vissi af honum í Hólmahjáleigu.
Við fórum jú í sumar og þá kvaddi Hafþór þennan einstaka vin sinn í
síðasta sinn en á milli þeirra var ósýnilegur þráður sem engin gat rofið.
Alla þeirra tíð hélt Bólstri tryggð við strákinn, tók sig alltaf frá
hrossunum og kom til Hafþórs, fylgdi honum og leyfði stráksa að
klöngrast á bak sér og dunda í kring, alltaf var klárinn rólegur
gagnvart Hafþór. Hafþór okkar er búinn að gráta mikið síðan hann vissi
að Bólstri væri farinn til feðra sinna, margar spurningar runnið upp og
mikið hugsað, veit jú að þetta fylgir því að eiga dýr... að það er okkar
ábyrgð að þeim líði vel og við látum þau ekki kveljast ef eh amar að hjá
þeim sem ekki er neitt hægt að gera við.

Um
mánaðmótin okt-nóv brugðum við hjónin okkur eina nótt á Hótel Selfoss,
fórum um miðjan dag á laugardegi úr bænum og vorum tæpan sólarhring tvö
ein og höfðum það gott, fórum á smá rúnt, lögðum okkur, fórum út að
borða og höfðum það gott ;-) Þetta
er í fyrsta skiptið sem við förum svona tvö ein... á hótel og komum
krökkunum í pössun, eigum borgarferð til útlanda eftir ;-) Reynir
tók börnin að sér og samdi svo við Gunnu í Kaldárholti um að hafa
þau hjá sér ásamt Díönu því hann var víst búin að lofa sér í smíða vinnu
hjá Stebba frænda sínum.... krökkunum fannst nú ekkert leiðinlegt að
komast aðeins til Gunnu og garfa smá í sveitinni enda vel heima vön þar
á bæ. Við sóttum þau um miðjan dag á sunnudeginum, kíktum á hrossin sem
voru öll í flottu standi. Fórum svo áleiðis í bæinn.

Hafþór
heilsar Kipp og Klöpp, Kvikubörnum


4.
sept 2009!!!
Tveir
mánðurir liðnir frá síðustu færslu....

Er
búin að vera á leiðinni til að setjast niður og skrifa eh sl daga en
hefi ekki gefið mér tíma til þess. Ég var farin að fá skammir héðan og
þaðan vegna þess að ekkert væri að gerast á síðunni minni...... var
spurð góðfúslega hvort það „væri brjálað að gera??““ og sagði svaraði
því bara neitandi, væri bara að fara af stað í rútínubundan lífið mitt í
rólegheitum..... „nei bara því það eru 2 MÁNUÐIR síðan þú bloggaðir
síðast“ fékk ég svo að heyra ;-)
Gott
og gaman að fólk fylgist með hjá manni en auðvitað nennir engin að kíkja
hér við þegar engar eru fréttirnar.... gefur jú auga leið ;-)

Enn og
aftur hefur ýmislegt á daga okkar drifið síðan síðast, erum búin að eiga
frábært sumar, fara víða og hafa það gott.... Erum sumsé komin heim í
heiðardalinn (Voginn) og allt að falla í ljúfa löð, allir á sínum stað á
daginn, krakkarnir eru glöð í skólanum, stunda íþróttir af kappi, ég er
búin að taka nokkur hross á hús, Biggi er á sínum stað og
hesthúsbyggingin er allveg jafnvel mögulega að fara að fara af stað....
já og lífið er bara yndislegt ;-)
Dagana
10.-12. Júlí fórum við fjölskyldan í 3 daga hestaferð á okkar hraða á
okkar tíma bara huggulegt að vera með börnunum á ferð. Hrossin okkar
voru jú á Kjóastöðum eftir Kjalferðina og ekki var nú mikið vit í því að
keyra þau á milli sveitarfélaganna þegar hægt er að fara ríðandi eða
hvað? En sumsé við fórum fyrsta kvöldið (föstud 10.júl) frá Kjóastöðum í
Biskupstungum til frændfólks okkar að Bryðjuholti í Hrunamannarhepp.
Dagleiðin var frekar stutt og létt, hrossin voru kát og krakkarnir
blómstruðu með okkur mömmu, Biggi var „trúss“ þessa leið, var ný komin
af sjónum og vildi ekki stökkva beint á bak svo varð jú eh að vara
hliðvörður og á bílnum :)


Laugard. 11.júl fórum við frá Bryðjuholti að Reykjarétt á Skeiðum, riðum
í gegnum Flúði, yfir Langholtsfjall niður í gegnum Álfaskeið yfir
Stóru-Laxá komum að Óskabakka á Skeiðum og svo línuveg að Reykjarétt þar
sem við geymdum hrossin eina nótt. Leiðin var frábær, mjúkar reiðleiðir,
flott útsýni krakkarnir fengu að sulla smá í Á og já bara draumur fyrir
þau að vera með. Þennan dag riðum við öll (Biggi, Sigga, ég og
krakkarnir) Ferðin gekk reyndar hægar en við bjuggumst við því á leið
okkar í gegnum Flúði hittum við Berglindi frænku Bigga sem býr í Efra-Langholti
og ekki var nú tekið annað í mál en að koma þar í kaffi enda lá leið
okkar nánast um hlaðið hjá þeim.... þar vorum við örugglega stopp í
2klst, nú þegar við vorum að koma „ofaní“ Álfaskeiðið þá hittum við
fyrrum skipherra Bigga og hans frú á tjaldstæðinu og auðvitað var
stoppað þar og skrafað góða stund.
Sunnudagur 12. Júl voru svo Þjórsárbakkarnir teknir með trompi, riðum
frá Reykjarétt og „heim“ í Kaldárholt, skemmtileg reiðleið, mjúkar
reiðgötur og bara gaman að vera til. Mikið kapp var á milli krakkanna að
vera fyrst að hverju hliði til að opna fyrir hópnum ;-) Slegið í og
hleypt um leið og glitti í hliðin... sem voru ansi mörg.
Hrossin voru góð í ferðinni, komi í rosalega gott form og enga þreytu að
sjá á þeim, fundum vel fyrir því þegar við vorum að koma fram
Gíslholtsfjallið og nálguðumst óðfluga þeirra sumarhaga að næg orka var
enn til staðar því þá vildu sum hrossin bara gefa meira og meira í enda
vissu þau vel hver stefnan væri nú orðin. Krakkarnir hleyptu meira og
minna heim eyrarnar og við hin tókum til kostanna, bara gaman að vera
til. Mér telst til að þegar hrossin loks komu í sumarhagann eftir nærri
4 vikna ferðalög voru þau búin að leggja ca 800km undir hóf hvert fyrir
sig ;-)
Komma
okkar slasaðist jú rétt fyrir sleppitúr, hún fékk fararleyfi út um 20.
Jún. Sigurþór á Meðalfelli var svo almennilegur að taka hana fyrir okkur
og hafði hana sér fyrst um sinn áður en hún fékk svo að fara með öðrum
hrossum.... hún var orðin óhölt en töluvert bólgin um olnbogann á vi
framfæti. Við ákváðum að halda henni undir hest og leyfa henni bara að
fá sinn tíma í rólegheitum. Hún fór undir Fláka frá Blesastöðum, ungann
efnilegan hest sem vonandi á eftir að gera það enn betra á
kynbótabrautinni í framtíðinni ;-)


Við
tókum okkur einn dag í að keyra hross (reyndar fleir daga) og fórum þá
með Kommu undir hest og skiluðum honum Hrekk frá Hæl sem ég var búin að
vera með í láni síðan í vor. Á Hæl voru nýlegir hvolpar sem voru
auðvitað skoðaðir í bak og fyrir ;-) Alltaf gaman að koma til Hörpu og
Jóa, hægt að spjalla um allt milli himins og jarðar og tíminn er fljótur
að fljúga frá manni.

Eina
helgina fengum við góða heimsókn í sveitna, það er nú misjafnt hvernig
fólk hegðar sér í sinni fyrstu heimsókn en Stína og Örvar tróðu sér í
bókstaflegri merkingu inn til okkar... Takk fyrir skemmtilega heimsókn
;-)



Við
tókum okkur til ásamt Helgu og Reyni og börnum og ömmum og fórum og
skoðuðum framkvæmdir við Bakkafjöruhöfn, fórum upp á Hamragarðsheiði og
sáum grjótnámuna þar sem allir STÓRU steinarnir eru teknir til að byggja
varnargarðana. Gaman að sjá þessar framkvæmdir í návígi. Nokkuð margar
ferðir sem þarf að fara á vörubílunum þegar þeir eru orðnir fullir með 3
steina á pallinum.... Nú fyrst við vorm lögð af stað í leiðangur fórum
við inn Fljótshlíð og skoðuðum okkur um þar.






23.-24, júlí fórum við ásamt Helgu og Reyni og börnum (aftur en nú án
ammanna) í smá rúnt inn á afrétt, fórum upp Land, keyrðum í gegnum
Skarfanes. 
Skoðuðm Búrfellsvirkjun.


Sáum
stærsta niðurfall á Íslandi.



Keyrðum inn í Landmannalaugar með viðkomu á ýsmum stöðum á leiðinni,
gistum svo í nýja húsinu í Áfangagili áttum þar notalega kvöldstund. Góð
ferð en góðu vegirnir voru ekki á sömu leið og við.


Enduðum ferðina á að fara að Hjálparfossi og
í stærsta heitapott á Íslandi...
sundlaugina í Þjórsárdal..... snilldarlaug og örugglega gaman að „stelast“
yfir grindverkið að næturlagi hjá þeim sem það langar ;-)
Um 20
júlí fórum við með hana Sprungu til Erling og Viðju í Langholti í Flóa
og nú átti að ath hvort ekki væri hægt að rúlla dömunni í kynbótadóm.....
Við
verðum seint þekkt fyrir það að hanga á sömu þúfunni of lengi á sumrin,
enda er það allveg ástæðulaust ;-) maður getur sofið þegar maður er
gamall og / eða dáinn en þá er of seint að ferðast og skoða landið sitt
;-)
Dagana
27.-30. Júlí brugðum við undir okkur „betri“ hjólunum... ásamt Helgu og
Reyni (nei ekki ný frétt) stefnan var sett á Borgarfjörðinn og ætluðum
við sko að njóta veðurblíðunnar sem ku víst hafa verið þar í sumar....
það var eins og með góðu vegina inn á Landmannaafrétti sólin, lognið og
blíðan voru ekki á sama stað og við í Borgarfirðinum. Ferðin var engu að
síður frábær. Byrjuðum á að hitta H&R í Borgarnesi og næst var stefnt að
Hömrum til hans Jakobs, fengum að tjalda við stofugluggann hjá honum í
skjóli ;-) Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir þá var stefnan sett
á að fara í sund..... en lærðum það furðu fljótt að Borgfirðigar baðast
víst ekki á mánudögum..... nei allveg satt, við komum að tveim
sundlaugum sem eru lokaðara á mánudögum og á þriðja staðnum var eingöngu
boðið uppá heitan pott en það tók amk 1klst að láta renna í hann OG það
var mánudagur!!!!

Við héldum sumsé jafn illa
lyktandi „heim“ að Hömrum og skelltum í okkur nokkrum bjórum til að lifa
fnykinn af.... getið ýmindað ykkur lyktina af 7 manneskjum og einum
hundi ;-)

En já
Borgarfjörðurinn var skoðaður og margt fallegt að sjá þar,




fórum
á Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri, keyrðum Flókadalinn,

framhjá Stóra-Kropp (sáum ekki hasarkroppinn)

Deildatunguhver,

keyptum okkur grænmeti í sjálfsafgreiðslu,

sáum
einbeitta njólarækt.

Keyrðum framhjá Höll,

Þverárrétt

Heimsóttum Kolbein, sáum hestinn hans

og hvernig fer fyrir óvelkomnum hröfnum
keyrðum
Þverárhlíðina.
Eftir tvær nætur hjá Jakobi
fluttum við okkur til Davíðs og Fríðu og settumst „upp á“ þau eina nótt,
áttum með þeim notalegt kvöld. Keyrðum svo auðvitað inn Hvítársíðuna,

fundum leiðina heim til Tobbu,



ég fann nokkara kirkjur til að
taka myndir af,

fundum út hver ríkjandi vindátt
er í Húsafelli


sá gamla traktora sem hafa ekki komist alla leiðina heim


svo var það Hraunfossar og
Barnafoss
Um
verslunarmannahelgina vorum við í rólegheitum í sveitinni hjá Gunnu,
höfðum það gott þar eftir ferðalagið.

Við
náðum í Sprungu því Erling var á Heimsmeistarmóti og vildi að ég héldi
henni í þjálfun meðan hann væri úti, því það væru jú bara 10 dagar í dóm
þegar hann kæmi að utan. Ég þjálfaði hana samviskusamlega í 10 daga og
svo fór hún aftur til Erlings og Viðju.

Í
byrjun ágúst fórum við og heilsuðum uppá Bólstra hans Hafþórs.


Kítkum
á stóðið í Hólmahjáleigu

og á
hann Hnykk okkar sem er á Lágafelli með mömmu sinni,

þar í
stóðinu er einnig hún Brák sem við áttum fyrir mörgum árum, gaman að sjá
hana aftur.
Fórum
og skiluðum Skrá og Grana til hans Aðalsteins og komum við í sunlauginni
á Borg í Grímsnesi og fórum svo og borðuðum á Hótel Iðu

þar
blasir Iðubrú vel við.

Gamall
traktor er þar í kantinum.

9 ára
afmælið hennar Díönu Ýr var haldið í Kaldárholti
11.-14. Ágúst brugðum við okkur norður. Komum við á góðum stöðum,
byrjuðum á að koma við á Syðsta-Ósi og heilsuðum uppá Þórunni og Böðvar.
Fórum þaðan í Mánaskál til Kollu og gistum hjá henni eina nótt, engar
smá breytingar sem hafa orðið hjá þeim á Mánaskál í sumar. Þórdís Katla
stækar og dafnar með hverjum deginum. Auðvitað fórum við að veiða aðeins
í Langavatni og uppskárum 9 fiska.... Næsta stopp var svo Svalbarð við
Dalvík, Kata og Halli voru svo frábær að lána okkur húsið sitt. Áttum
góðan tíma en allt of stuttan fyrir norðan, fórum í sund,

krakkarnir töldu kirkjutröppurnar,

skoðuðum bæjarlífið og fórum í mat til Kötu inn á Akureyri. Takk fyrir
okkur.

Við
Keyrðum Kjöl suður,


komum
við á Hveravöllum og skoðuðum hverasvæðið


og
helli Fjallar Eyvindar og Höllu




19.ágúst fór Sprunga okkar svo í dóm, fékk 8 á línuna í hæfileikum nema
fyrir skeið (enda skeiðlaus skepnan) og 7.78 fyrir byggingu. Erum ánægð
með dömuna og svo er bara að vona að hún gefi okkur góð hross í
framtíðinni. Sýnandi var Erlingur Erlingss
4.júlí
Enn og
aftur líður næstum mánuður á milli skrifa hjá mér..... ég bara skil ekki
hvernig þetta gerist aftur og aftur, kannski er jú bara svona gaman hjá
mér að ég gleymi að setjast niður við tölvuna og skrifa smá fréttir ;-)
En já
síðan síðast hefur margt á daga okkar drifið ( eins og fyrridaginn)
Í
byrjun júní fór hún Særós okkar í nokkra daga (Sunnd – miðvikud) dvöl
til Hörpu og Jóa á Hæl í Flókadal. Algjör draumur fyrir
sveitaprinsessuna okkar að fá að dunda með Hörpu við sveitastörfin, hún
fór á hestbak, dundaði í kringum hvolpana, fékk að fara á fjórhjólið
þegar var verið að láta ca 15 hunda hlaupa með kvölds og morgna, var við
geldingar á hestum, skoppaði í kringum nýfædd folöld ofl ofl. Hún var
alsæl þarna í sveitinni og vildi varla koma heim, stefnan var að sækja
hana á þriðjudegi en hún vildi ekki með nokkru móti koma heim, vildið
vera aaaaaðððeeeeeeiiiinnsss lengur ;-). Endaði dvölina með Hörpu á að
fara út að borða og í bío hér í bænum. Bara yndislegt að eiga svona góða
vini í sveit sem geta leyfa borgarbörnunum okkar að upplifa sveitina.
Á
meðan Særós var í sveitinni var Hafþór einn með okkur að dunda, ýmislegt
sem við urðum að gera fyrir sleppitúrinn, , fórum með Ljósku, Skykkju og
Árás austur að Kaldárholti og með Birtu til Pilts frá Sperðli, gerðum
hjólhýsið klárt fyrir sleppitúrinn... já og riðum út af krafti.



Árás mætt á svæðið

Ljóska


Skykkja heilsar Slóð

Piltur Sperðli
11.
júní var svo lagt af stað í sleppitúrinn, fórum af stað frá Gusti kl 17
og var stefnan sett á Helgadal í Helgadal. Við riðum öll fjölskyldan
einnig voru mamma og Stína vinkona með okkur í för Dódó og Össi, svo var
Ármann (tvíburi) og Einar hesthúsasambýlingur tvíburanna með okkur,
veðrið var frábært og allir léku við hvern sinn fingur. Frábært að koma
þarna í Helgadal, góð aðstaða og allt svo hreint og snyrtilegt á bænum,
hrossin fengu gott stykki til beitar og mannskapurinn fór til síns heima
til hvílu.
Á
föstudeginum (12.) fóru Biggi og Össi með hjólhýsi og bíla inn að
Svartagili svo allt væri nú á sínum stað þegar hópurinn kæmi að kveldi.
Hópurinn hittist svo eftir vinnu hjá flestum, um kl 17 lagði hópurinn úr
hlaði frá Helgadal og nú lá ferðinn inneftir Mosfellsdalnum í átt að
Skógarhólum eða réttara sagt Svartagil, ferðin gekk vel en í Stíflisdal
losuðum við hrossinu í sundur og rákum restina af leiðinni, reksturinn
gekk vel en jú býsna hratt á köflum þegar sum hrossin voru farin að átta
sig hvert þau stefndu vildu þau bara drýfa sig. Við vorum komin í
Svartagil um kl 23 að kveldi þar áðu hrossin tvær nætur því margir voru
uppteknir á laugardeginum, ýmiskonar veislu í gangi hjá mannskapnum
þannig að flestir fóru til síns heima nema við gistum í hjólhýsinu okkar
góða. Við tókum því bara rólega og höfðum það gott meðan aðrir fóru í
sínar veislur. Dódó og Össi og mamma komu seint á laugardagskvöldi.

Á
sunnudagsmorguninn forfærðu Biggi og Össi einn bíl upp að Kringlumýri en
þangað lá leiðin þenna daginn, var fólkið komið um kl 10 í Svartagil og
lagt var af stað um kl 12 í gegnum skógargötur,
Ármann og Reynir settu hrossin sín á kerru við Gjábakka en við
hin héldum áfram upp á Lyngdalsheiðina að Kringlumýri þangað vorum við
komin um kl 16. Þar girtum við beitarhólf fyrir hrossin okkar (okkar
og Össa og Dódó) og komum fyrir vatnsdalli. Svo var ferðinni
heitið í Víðigerði til Óla frænda og Hönnu með hjólhýsið, við Biggi
fórum til baka og sóttum hjólhýsið frá Skógarhólum, Dódó, Össi og mamma
fóru beint frá Kringlumýri að Víðigerði. Við höfðum það gott á hlaðinu í
Víðigerði með hjólhýsið, grilluðum góðan mat, skruppum í sund og
slökuðum á, bara huggulegt.

Á
mánudeginum keyrði Hanna hluta af mannskapnum upp að Kringlumýri en Össi
og Dódó fóru líka á bíl uppeftir. Nú var bara að gera hrossin klár fyrir
ferð, taka saman girðinguna sem við settum upp, Össi járnaði reyndar
einn fót á einum fola sem ég var með og tókst með ótrúlegum hætti að
þræðast fastur uppá hóffjöðrina með vinstri þumalinn, fjöðrinn fór inn
undir húð við fremri liðinn og kom út undan skinninu fram við nögl....
hann kallaði allt í einu á mig og bað mig að aðstoða sig því hann væri
FASTUR sem var engin lygi því hann var jú þræddur uppá tein ef svo má
segja. Sem betur fór slapp hann vel, það blæddi auðvitað töluvert en
hann fékk umbúðir um fingurinn og lagði svo bara af stað á hestbaki rétt
seinna, fékk reyndar að vera prinsessa þennann daginn (góð leið til að
sleppa við að teyma). Þennan dag riðum við já frá Kringlumýri, niður að
Apavatni, meðfram Mosfelli, yfir Brúará og þaðan upp að Litla-Fljóti.
Gott að eiga hann Hósa á Fljóti að þegar maður er svona á ferðinni og
geta fengið að setja hrossin á beit hjá honum;-) Aftur gistum við í
Víðigerði en mamma, Össi og Dódó urðu að fara í bæinn því þau þurftu öll
að mæta til vinnu á þriðjudeginum.

Þriðjudagurinn 16.júní fór í rólegheit framan af, krakkarnir skruppu í
sund og við höfðum það notalegt, gerðum okkur klár fyrir síðustu
dagleiðina okkar sem var frá Litla-Fljóti að Kjóastöðum. Mamma, Össi og
Dódó voru komin um k 18 austur og við vorum lögð af stað ríðandi um kl
19, þetta er eina dagleiðin þar sem við riðum nærri eingöngu meðfram eða
á vegi og því gott að vera frekar seint á ferðinni. Við vorum komin upp
að Kjóastöðum um kl 22,
ferðin gekk vel, engin bílaumferð og veðrið var gott.

Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur alla ferðina, riðu með hvern einasta
spöl, á ýmsum hrossum, Særós notaði Sjón og Gjafar en Hafþór notaði
Hemru og Jörð. Hrossin voru í fínu formi og mannskapurinn kátur, þetta
var skemmtileg ferð og verður vonandi farin önnur um svipaðleiti að ári.

17.júní vorum við í Reykholti, krakkarnir fengu andlitsmálun og kíktu
aðeins á skemmtidagskránna, seinnipart dags keyrðum við með hjólhýsið
austur að Kaldárholti, þegar við vorum á leiðinni þangað hringdi hún
Gunna og sagði okkur að hún Kvika væri köstuð, brúnn hestur var það
heillin. Við stoppuðum að sjálfsögðu við og skoðuðum hann þegar við
komum austur, fallegt folald, vel þroskað og fínt. Verður gaman að
fylgjast með honum í framtíðinni.

21.
júní fór ég svo af stað norður yfir Kjöl með Hjalta og Åsu á Kjóastöðum,
ásamt stórskemmtilegum hópi fólks og 20 erlendum ferðamönnum/konum,
ferðin norður var frábær í alla staði,hrossin góð, fólkið skemmtilegt og
veðrið fínt....ég vildi eiginlega ekki koma heim aftur ;-/


Á
meðan ég skemmti mér á Kili voru börnin í sumarbúðum að Úlfljótsvatni og
áttu þar skemmtilegar stundir við ýmiskonar iðju.


28.júní var Kristín Dilani fermd í Seltjarnarneskirkju, falleg athöfn og
stóskemmtileg veisla

Sl
viku hafa krakkarnir svo verið austur í Kaldárholti með ömmu Siggu því
ekki kom til greina hjá þeim að hanga í bænum, hvorki mömmu né krökkunum
því þau eru jú í fríi ;-) þau hafa dundað við hitt og þetta, smalað
kindum og rúið þær, farið að veiða og já auðvitað leikið sér og vakað
fram á nótt ;-) ég er búin að vera í bænum að vinna og fer svo í
sveitina þegar ég kemst í frí.

10. júní
Jæja nú er bara komið að því loksins.... sleppitúrinn er á morgunn og nú
eru tamningar settar á hilluna í bili. Hrossin hafa verið góð í vetur,
fólkið sem ég hef tamið fyrir frábært og allt gengið upp, er búin að
hafa mörg skemmtileg hross þetta tímabilið, allveg sloppið við eh bjána
en sum hafa jú tekið aðeins lengri tíma en önnur en svoleiðis er það jú
bara með þessi blessuðu hross.
Síðustu helgina í maí ( laugardagur) var Gæðingakeppni Gusts, krakkarnir
tóku bæði þátt og stóðu sig með prýði. Særós varð í 5.sæti í barnaflokk
á Gjafari sínum, stóð sig mjög vel í sinni (og hestsins) fyrstu
gæðingkeppni, þau eiga margt ólært en vá hvað við vorum stollt af
stelpunni okkar ;-) Hafþór reið um eins og herforingi í pollaflokknum á
Jörð sinni.Hafþór
var einnig iðinn við að vera hliðvörður og fékk að taka þátt í
verðlaunaafhendingu í úrslitum





Á sunnudeginum brunuðu við austur í sveit með Usla og Ísöld, þau voru
búin að mæta vel í alla tíma þetta vorið og áttu frí skilið, ég vildi
ekki taka þau með í sleppitúrinn enda er nægur tími til þess á komandi
árum. Þau voru auðvitað frelsinu fegin, stóðið tók nú ekki illa á móti
þeim... Birta og Kvika lögðu þeim sitthvort orðið í eyra og þar með
vissu þau hvað mátti og hvað ekki... hugsa nú að gamli klárinn minn
hefði nú þurft að láta þau hlaupa aðeins og haldið þeim vel fyrir utan
hópinn ef hann væri enn með í stóðinu ;-)Hrossin
litu vel út, voru róleg og yfirveguð og hafa það greinilega gott


Ísöld frelsinu fegin, Kvika nennir nú ekki að hreyfa sig að óþörfu

Klöpp og Gaur koma skokkandi

Klöpp fékk frumraun sína í að bera knapa á bakin, hún tók því mjög vel
þegar ég hoppaði á bak henni og fékk far með henni nokkra metra....
Næst fórum við og sóttum hjólhýsið úr vetargeymslunni, bara notalegt að
ná í það, það kom vel undan vetri, ekki saggi eða eða mygla í því ;-)
Við fórum með það uppí Kaldárholt og komum okkur fyrir í því, bara
notalegt að liggja í því um kvöldið og hlusta á fuglasöng og kinda jarm
og krakka köll (krakkar úti
við leik) Svo er jú bara gott að komast í sveitina og slappa af, ræða
heimsmálin við hana Gunnu okkar, kíkja á lömbin og jú gott ef ekki einn
kaldur var ekki með á kantinum ;-)



Það var eitt allveg ótrúlega lítið lamb í sveitinni, Agnar Smári

Eitt lambið hans Hafþór var með umbúðir á fæti sem þurfti að fjarlægja

Nóra hafði nó að gera

Tásla hafði það gott
Á mánudeginum fórum við með hana Spörtu niður að Hólmahjáleigu til hans
Máttar, hún mun vonandi kasta innan tíðar hjá honum og svo verður
spennandi að sjá hvað kemur að ári undan þeim. Máttu tók vel á móti
Spörtu, enda kurteis foli með eindæmum ;-)



Á leið okkar sáum við hana Hugsýn sem við fengum folald undan nú í vor,
okkur leist bara mjög vel á folann.... 10 daga gamall og sýndi mest tölt,
ég náði að grípa hann við hlið móður sinnar, auðvitað brá honum aðeins
en hann tók okkur vel og var bara sáttur við klapp og kjass frá öllum í
fjölskyldunni.... óskum eftir H... nafni fyrir kauða







Einnig sáum við hann Bólstra og hana
Gæsku með mjög myndarlegann móvindóttan fola undan honum Mætti, folinn
er til sölu fyrir þá sem hafa áhuga
Sl daga hafa flogið áfram. Krakkarnir voru komin með nett leið á
skólanum og við enduðum á að fá frí fyrir þau síðustu dagana. Þau eru
búin að vera mjög dugleg að ríða út með okkur enda stefna þau bæði á að
ríða með okkur allann sleppitúrinn. Hrossin eru komin í gott form, við
erum búin aðf ara nokkra teymingatúra og trossu-teymingar hafa gengið
vel. Sl helgi var ég á næturvöktum, svo ekki gerði ég mikið á milli
vakta ..... nó var samt fyrir stafni hjá okkur.
Á föstudag fórum við upp að Meðalfelli með eitt tryppi til Sigurþórs og
náðum í hana Ljósku okkar. Smöluðum nokkrum hrossum heim að bæ
sorteruðum hrossin í sundur og fylgdumst með þegar einni hryssu var
haldið undir Feng Sæ/Eydísarson. Það var ekkert mál að taka Ljósku á múl
og teyma hana uppá kerruna, bara eins og tamin.






Særós var ekki hætt á flakkinu því næsta stopp hjá henni var á Hæl í
Flókadal hjá Hörpu og Jóa. Við brunuðum beint upp í Flókadal, áttum góða
stund með Hörpu og Jóa áður en við skildum frumburðinn eftir, sáum
auðvitað hvolpa... fullt af hundum, kíktum á hrossin fengum ljúfengt
lambalæri að borða svo urðum við að bruna í bæinn því ég var á leið á
næturvakt, við vorum komin um kl 23 í bæinn, ég rétt náði að skipta um
föt og brunaði svo í vinnuna.





Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott... vonandi stens það með hana
Kommu okkar en á mánudaginn slasaðist hún, sennilega hefur hún verið
slegin úti í gerði en amk var hún stokkbolgin á vi olnboga þegar við
vorum að setja hrossin inn, Björgvin „dýri“ kom til okkar og hann vildi
fá hana til myndatöku, ég hélt fyrst að hún væri úr olnboga liðnum en
Björgvin vildi vera viss um að hún væri ekki fótbrotin, við mjökuðum
henni uppá hestakerru, hún átti mjög erfitt með allrar hreyfingar og
allt tók þetts sinn tíma fyrir hana greyið,
sem betur fer var hún ekki
brotin. Hún gat varla hreyft sig og skalf öll ef hún þurfti að færa sig
eh til Hún verður að vera inni nk 2-3 vikur, verður mynduð aftur seinna
til að sjá hvort að nokkur skemmd komi fram í beinum. Svo verður tíminn
bara að leiða í ljós hvernig batinn gengur. Þettar er allveg ferlegt að
missa hana svona út fyrir sleppitúr og Kjalarferð, Hafþór hefur jú nærri
eingöngu riðið henni sl vikur og gengið frábærlega með hana, þau smella
vel saman, hún er allveg ótrúlega flott undir stráksa, svo nú verður
Hafþór að „sætta“ sig við önnur hross undir hnakkinn en eingöngu hana og
Jörð sína í sleppitúrnum.
24.
maí
Sjöfn
sendi mér tvær myndir í sms af honum „enda“ litla í gær.... læt þær
fylgja ;-)


21. maí
Jæja nú er fyrsta folaldið okkar þetta árið komið í heiminn. Hún Hugsýn
frá Huldu og Bjarna var fyrst til og kom með jarpskjóttann blesóttann
hest, við fórum með hana undir Vals frá Efra-Seli í fyrra svo sá stutti
er með mikið skjótt á bak við sig.

Við erum ekki búin að sjá hann nema bara á einni mynd í gsm símanum.
Ágætur vinur okkar sá þann stutta í dag og leist mjög vel á hann,
fallegur og laus gangur í þeim litla sagði hann. Svo er bara að finna
„H“ nafn á folann ;-)
Svo nú er bara að bíða eftir
næsta folaldi...
18. maí
Sól sól skín á mig... ský ský burt með þig.
Eftir allt þetta rok sem á okkur dundi í sl viku skall sólin á flestum
til mikillar gleði á föstudag, vá hvað það er búið að vera gott veður sl
daga, sauðir eins og ég eru þá löngu búnir að gleyma því að ekkert var
hægt að gera af viti fyrir nokkrum dögum... enda til hvers að pirra sig
á eh sem er löngu liðið og ekkert hægt að gera í hvort eð er??
Jæja nó um veður og allt það.
Ég gleymdi allveg að minnast á afmælisbörn sl vikna í síðasta bloggi....
best að bæta fyrir það núna...
Í mars voru það... þann 20 eignuðust Vignir og Helga lítinn prins,
innilega til hamingju með hann, þann sama dag átti Dísa (hans pabba)
afmæli, 23. Rannveig Bigga systir, 24. Sigga „amma“. 26. Hafþór Hreiðar,
27. Eik Elmarsd 1 árs. Í apríl ... þann 16 eignuðust Birgir og Rannveig
frumburð sinn, lítinn prins, innilega til hamingju með hann. 25. Átti
Vignir afmæli og þann 27. Birgir (Skæringssynir) Nú maí er langt kominn,
3. Bætti Reynir við ári, 6. Átti Helena María afmæli, 11. Varð hún Lísa
Albertsd 30!, 12. Bætti Halli við ári, 14. Halla og Gummi (og forsetinn)
15. Mona. Innilega til hamingju öll , vona að dagurinn ykkar hafi verið
ykkur góður ;-)
Það er víst sjaldan lognmolla hér á þessum bæ... í sl viku fórum við
Biggi austur og færðum hrossin okkar á milli bæja, frá Saurbæ yfir að
Kaldárholti, það er víst komið sumar þegar það gerist ;-)


Hafþór fékk sumarklippinguna



Sl föstudag fórum við á úrslitakvöldið í Idol í Smáralindinni, þetta var
mjög gaman og engin smá fagnaðarlæti þegar Hrafna vann, Særórs og Hafþór
hittu hana einmitt í hléinu og fengu myndir af sér með henni, þau hafa
haldið með henni alla keppnina svo þau vor nú ekki lítið glöð þegar hún
vann
Um helgina var Íþróttamót Gusts og að sjálfsögðu kepptu „öll“ börnin mín,
öll stóðu þau sig með stakri prýði, prúðir og fínir reiðmenn sem eiga
framtíðina fyrir sér.

Særós keppti í tölti í barnaflokk á Gjafari.

Kolbeinn keppti í fjórgang í unglingaflokk á Ísafold frá Þúfu


Hafþór keppti í tölti og þrígang í pollaflokk.
Í gær fórum við í ótrúlega skemmtilegan reiðtúr, ég og krakkarnir. Við
ætluðum nú í upphafi bara aðeins inn fyrir Heiðmerkur „hlið“ en ferðin
breyttist „smá“ og vin enduðum á að fara í gegnum Heiðmörkina og „Hjallana“
heim. Særós fór á Gjafari og gekk mjög vel, Hafþór var á Kommu og reið
eins og herforingi, Kolbeinn var á Hrekk og ég á Sprungu.
Veðrið var geggjað,nánast logn, sól og steikjandi hiti, ferðin
tók okkur rúmlega 3klst og voru krakkarnir alsælir þegar heim var komið....
en þetta var ekki nó fyrir þau, vildu fara aftur áhestbak og við fórum
þá styttri túr, Særós fór á Sjón, Hafþór á Duld, Kolbeinn á Ísöld og ég
á Jörð. Nú fórum við bara upp að tjörn, öll alsæl og glöð.
Ég verð að hrósa honum Hafþór okkar þarna því hafði hvoruga merina
prufað áður og var hvergi banginn að fara á þær, ekki að þetta séu eh
hrekkja bykkjur en oft eru börn nú ekki til í að fara af sínum
reiðhrossum og yfir á önnur. Sjón þekkja þau bæði ágætlega. Særós er
ofsalega ánægð með Gjafar sinn og nú er hún ólm í að fara næst á Duld
eða Kommu, hún hefur tvisvar prufað Kommu og gengið vel á henni svo er
það bara Duddið mitt sem er að koma verulega á óvart ef hún í alvöru
ætlar að vera svona góð að krakkarnir geta notað hana því þeir sem hana
þekkja vita jú að það eru ekki allri sem ná sambandi við hana og ef það
gerist þá stendur hún bara kjurr og starir út í loftið og spáir í hvað
fólk sé í alvöru að hamast á baki henni ;-)
En með þessu held ég að ekki sé aftur snúið með börnin okkar, þau tala
bara um hvenær hestaferðin sé og hvaða hrossum þau ætli að nota, held
við Biggi verðum að skiptast á að hjóla með ef við ætlum á annaðborð að
vera samferða þeim ;-) Ég er ekker smá glöð hvað þau eru áhugasöm og
dugleg þessi bestu börn mín ;-)
April-mai´09
Jan-mars´09
Sept-des´08
Júli-ágúst ´08
Jún´08
Maí´08
Apríl´08
Mars´08
Feb ´08
Jan´08
Des ´07
Nóv
'07
Okt ´07
Sept
´07
Júlí- Ágúst ´07
Júní
´07
23.- 28. maí ´07
1.-20 maí ´07
Mars til apríl ´07
Febrúar til mars´07
Janúar fram í miðjan feb ´07
|