/ Dagsins annir /Börnin / Myndir / Tásla / Hið góða og fyndna /Tenglar / Hestarnir / Við / Gestabók /

       www.hrossasott.com 

Dagsins annir

Hestarnir

 

Börnin

Særós Ásta

Hafþór Hreiðar

(´03)Börnin okkar eru Særós Ásta og Hafþór Hreiðar þau eru á leikskólanum Fögrubrekku í Kóp. Þar líður þeim mjög vel og hlakka til að fara á hverjum degi þangað. Þau eiga sitt hvort hrossið sem þau fengu í tannfé. Særós á hana Kviku sem hún fékk frá Siggu "ömmu" Kvika er rauðstjörnótt glófext hún er bandvön og verður svo tekin til bænanna í vetur en þá verður hún taminn. Hafþór á hann Bólstra hann fékk hann líka í tannfé en við (mamma og pabbi) gáfum honum hann, Bólstri er moldóttskjóttur og er voðalega blíður og góður. Særós og Hafþór eru mjög dugleg að koma með okkur í hesthúsið og hjálpa þar til. Þau eru bæði farin að fara sjálf á hestbak og er mjög dugleg að láta hann Víking hlýða sér. 

Veturinn ´05 var Særós Ásta á Birtu, bæði á reiðnámskeiði og svo á æfingum fyrir sýninguna "Æskan og hesturinn" Særós gekk mjög vel og er orðin dugleg á hestbaki aðeins 6 ára.  Þessi vetur var soldið erfiður fyrir Hafþór að því leyti að við áttum ekki hest fyrir hann en fengum einn lánaðann sem sem hét Gosi, Hafþór var á honum á æfingum fyrir æskuna og hestinn og gekk bara ágætlega einnig á sýningunni sjálfri, held að þarna hafi Hafþór verið yngsti sýnandinn enda aðeins 4 ára. Því miður fór að bera á helti hjá Gosa  og kom þá í ljós að hann var spattaður uppi í mjöðm og var því felldur. Næst fengum við lánaðann hest sem heitir Hringur fyrir Hafþór og fóru þeir á reiðnámskeið, það gekk bara vel. Hafþór var duglegur að láta klárinn hlýða og tók stráksi góðum framförum á hestbaki þennan vetur.

Haustið ´05 byrjaði Særós Ásta í Digranesskóla. 1. bekk, henni gekk mjög vel í skólnaum, fljótt orðin læs og skrifandi, dugleg stelpa hér á ferð eins og í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún æfði líka fimleika hjá Gerplu og stóð sig vel þar. Hafþór var á síðasta ári sínu á Fögrubrekku, alsæll þar og á þar marga góða vini hann æfði líka fimleika hjá Gerplu og stóð sig vel þar, sterkur og kröftugur strákur hér á ferð.

Veturinn ´06 Krakkarnir fengu bæði ný hross undir hnakkinn. Særós fékk Sjón hennar ömmu og Hafþór byrjaði veturinn á Birtu. Þeim gekk báðum vel og tóku þátt í sýningunni "Æskan og hesturinn" Særós var þar álfaprinsessa og Hafþór var ninja"gaur". Því miður heltist Birta í mars og var þar með úr leik og nú var enn og aftur komin upp sú staða að Hafþór vantaði hest. Við vorum svo heppin að vera boðin 20.vetra gamall klár sem var frábær fyrir stráksa, sáum það strax þegar Hafþó prufaði klárinn að þarna væri gamall höfðingi á ferð. Gandur var keyptur og Hafþór var alsæll með þann gamla. Krakkarnir tóku þátt í flestum vetraleikum í Gusti og gekk bara ágætlega, engir sigrar en það er gott að vera með og fá verðlaunapening fyrir þáttökuna ;-) Þegar líða tók að vori fóru þau svo bæði að koma með í lengri útreiðatúra og fara allveg sjálf allra sinna ferða alsæl og brosandi. Nú er það orðið þannig að maður verður bara að passa sig að vera með annars stinga þau mann bara af. . . fjörið er svo mikið.  

Haustið ´06 byrjaði Hafþór Hreiðar í 1. bekki í Digranesskóla. Honum gekk stax vel að fóta sig á nýjum stað. Lesturinn gekk vel hjá honum og fyrr en varði var stráksi farinn að stauta hér heima og skrifa þessa líka fínu stafi á bók. Særós er alltaf svo blíð og góð, hvar sem hún er. Henni gengur vel í skólanum og skilar sínu vel. Bæði æfa þau fimleika hjá Gerplu 2x í viku, alsæl og ánægð þar.

Þau fóru bæði á reiðnámskeið hjá Sigrúnu Sig hjá Gusti í vetur og gekk bara mjög vel. Særós er með Sjón sem sitt reiðhross og Hafþór hefur Gand gamla. Þau tóku bæði þátt í Æskan og hesturinn og höfðu gaman af.

Særós á Víking vorið ´03

Jólin ´03

Hafþór á Víking vorið ´03

Á skautum veturinn ´03 með pabba

Sæt og fín í des ´03

 Að renna sér í Vaðnesi feb´03

Hafþór vildi nú ekki koma of nálægt þessum unga sumarið ´04

Fyrsti fiskurinn veiddur sumarið ´04

 

Des´04  nú er Tásla komin inn á heimilið

Sumarið ´05 við Dyrhólaey

Særós á Birtu, Hafþór á Hring vorið´05

Ágúst ´05 við hafnargarðinn á Sauðárkróki

Særós á Sjón júlí´06

Hafþór á Gand júlí´06

Særós á Sprungu (3ja vetra) júní ´06

Kvika 4ja vetra  og  Bólstri 3ja vetra

Hafþór á Ísöld (2ja vetra) júní ´06

 

 

Tenglar

 

Við

 

Copyright © www.hrossasott.com   E-mail: hrossasott@hrossasott.com