|
Tásla

Táslu
fengum við 27. nóv. 2004 austur í Flóa hja manni sem heitir Ari hann býr að
Lækjargarði 1, við sáum hana auglýsta á netinu ásamt systkynun sínum.
Biggi heillaðist strax af henni og held ég bara hún að honum, ég var pínu
stund að ákveða mig en í dag sjáum við sko ekki eftir að hafa tekið hana
með okkur í bæinn.
Þennann
dag vorum við að taka inn folöld og þrjú hross og ákváðum að kíkja á
þessa hvolpa í leiðinni fyrst við vorum á ferðinn austur. Við vorum búin
að skoða hvolpa á nokkrum örðum stöðum en fundum e-h hluta vegna ekki þann
"rétta" við voru ákveðin í að þegar maður veldi hvolp þá ætti
að vera e-h tilfinning til staðar eins og þessi hvolpur væri "sá eini
sanni" Þessa góðu tilfinnigu fékk Biggi þegar hann hitti Táslu,
reyndar voru allir hvolparnir í þessu goti rosalega góðir og bliðir,
einstakt að koma og sjá hvað þau voru örugg með sig og kunnu vel á
manninn, því annarstaðar sem við höfuðum skoðað hvolpa var eins og
hvolparnir hefðu sjaldan hitt fólk.
Vonum
svo innilega að fleiri hvolpar úr gotinu sem Tásla kemur úr hafi fegnið góð
heimili. Nafnið hennar ber eiginlega augaleið. . hún er jú svört með hvítar
tær, ég fékk krakkana til að hjálpa mér að velja á hana nafnið og þeim
fannst Tásla flottast, Kolbrún bennti mér svo á að mamma Táslu heitir víst
Tása, hún heyrði hannAra kalla á Tásu þegar við vorum að skoða
hvolpana, soldið skondið hvað þær mæðgur bera lík nöfn. Krökkunum þykir
mjög vænt um hana Táslu okkar og ekki leiðist þeim að leika við hana enda
er hún bara krakki eins og þau, að hlaupa um og elta hvort annað er sko
gaman, í raun vorum við eiginlega að bæta við þriðja barninu þegar Tásla
kom.
Það er
sko ekki er hægt að kvarta undan því að hún sé gjammandi, því okkur hálf
bregður við ef það heyrist í henni, það er lika eins gott að hún sé
ekki alltaf að gjamma þegar maður býr í blokk eins og við gerum. Ég er
mikið með hana með mér í hesthúsinu og það líkar henni sko vel, getur
grafið sín bein inni í hlöðu og hamast, hún passar sig vel á hrossunum og
er mjög örugg með sig þar. Skemmtilegt finnst henni sko að hitta hana
Skellu og hann Vask því þá byrjar sko hamagangur á hóli, þó að hún sé
mörgum sinnum minni en Vaskur gefur hún sko ekkert eftir og hún og Skella
geta sko hlaupið um og hamast á meðan þær eru saman, það er lítill þreyttur
hundur sem kemur heim eftir að hafa hitt þessa hunda.


Fleiri
myndir á dýraríkinu gallery
hrossasótt
|