/ Dagsins annir /Börnin / Myndir / Tásla / Hið góða og fyndna /Tenglar / Hestarnir / Við / Gestabók /

       www.hrossasott.com 

Dagsins annir

Hestarnir

 

 

VELKOMIN Á HEIMASÍÐUNA

OKKAR

 

Gestabók

Velkomin á heimsíðuna okkar og takk fyrir að kíkja við hjá okkur. Vonum að þú/þið hafið gaman af að skoða ykkur um hér á síðunni. Endilega kvittið fyrir komu ykkar í gestabókinni.

Á síðunni er margt um okkar daglega amstur. Við erum jú fjögur í fjölskyldunni og höfum öll nóg að gera. Við erum: Lilja, Birgir og svo börnin okkar Særós Ásta, hún er fædd 1999 og Hafþór Hreiðar fæddur 2000, einnig eigum við hund af bordercollie/labradorkyni sem heitir Tásla. Við eigum 16 hross á aldrinum 1.v - 21.v og ætlum okkur að eiga um 8-10 reiðhross fyrir fjölskylduna. Stefnum svo á að halda 1-2 hryssum á ári en við höfum aðeins verið að fikta við að halda hryssum frá okkur og eru flest hrossanna okkur fædd.
Hrossasóttina hef ég (Lilja) haft frá blautu barnsbeini, veit ekki hve ung ég var þegar ég var farin að reyna að komast á eigin spýtur á hestbak eða að hestunum. Eitt af mínu fyrstu verkum eftir að við Birgir kynntumst var auðvitað að smita hann af sóttinni góðu ;-) það gekk bara mjög vel. Fyrir utan hrossasóttina er Birgir svo með fiskafíkn og prýðir stofuna 180ltr fiskabúr.

 

 

 Lilja á Kviku sumarið ´06                         Biggi á Grádögg sinni vorið ´05

 

           Særós Ásta á Gjafari vor´09                              Hafþór Hreiðar á Jörð vor´09

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Counter

Tenglar

Við

 

 

 

Copyright © www.hrossasott.com   E-mail: hrossasott@hrossasott.com Tel: 663-2603